|
|
09.04.2006 20:03:36 / Kristín
Já góðir hálsar, stúlkukindinn er í Rvk.. nánara tiltekið
Selfossi  haha nei sko var í rvk í gær og í fyrradag. Takk kærlega
fyrir mig Katrín  Ich Libe Dich
En annars er þetta barasta búið að vera frábært.. það sem er búið
að vera að gera er nokkurnvegn svona..
- Komið til rvk með KA-krílum og horft á ein leik með þeim

- Farið heim til Katrínar í höllina
- Farið í svaka eitthvað D.. eittvað partý, BTW ég
reddaði
- Mér finnst að ég ætti að fá verðlaun

- Þar var gaman, fullt af skemmtilegu fólk og soddan

- Vaknað svo eiturhressar kl 9 um morguninn og farið sturtu og
haft sig til fyrir tilvonandi skemmtun um daginn.
- Fórum í kringluna, entumst þar frá eitthvað um 12 til 4 TAKK
fyrir TAKK góð nýting
- Hringdi í Sibba og sagðist vera föst í í kringluni og hann
þyrfti helst eiginlega að redda mér.. hehe okkur

- Fórum í smáralind og þar var einnig verslaður af sér
rassin.
- Þar sem það var hætt að vera skemmtilegt í búðum og láta gera
grín sér og Akureyri var farið í pool og keilu, þar sem ég sökkaði
í pooli en rúlaði upp keilunni takk fyrir mig
Múahahaha hver er
best8-)
- En svo var bara haft gaman

Og þá var rvk-ferðin búin því svo daginn eftir fór ég á Selfoss að
meika heiminn, fór í fermingarveislu með frændfólki minu þar sem eg
þekkti akkurat ekki neinn, en hitti þá yndið hann Sigga hahaha
kallaði hann Hjálmar en það er sko aukaatriði
Fleygar spurningar sem sagðar voru..
- Er bíó á Akureyri..?
- Er heit vatn á Akureyri..?
- Eru hringtorg á Akureyri..?
Já þær voru miklu fleiri en ég barasta man þær ekki en já Sibbi þú
varst ógó fyndinn.... eða ekki
En takk samt fyrir mig þetta var frábært 
Heyrumst góðr hálsar.. Kristínaaa Heimsborgari
»
28.03.2006 11:55:39 / Kristín
...
...
Hvort finnst þér betra, Honey Nut Cheerios eða venjulegt
Cheerios...?
Mér finnst bæði betra..
Það er ekki hægt að finnast bæði betra..
Jú, mamma mín segir að maður eigi alltaf að segja hvað manni
finnst, OG mér finnst BÆÐI betra
Hver man ekki eftir þessari snilldar auglýsingur maður er
eiginlega bara farin að sakna hennar
Heyrumst Snjalla Kindereggið
»
24.03.2006 12:19:28 / Kristín
Ákvað að skella einum EITUR mögnuðum brandara sem ég eigna henni
Ingu Siggu heiðurinn að hafa sent mér
Eldgömul hjón voru að keyra á þjóðvegi eitt þegar að löggan stoppar
þau.
Löggan kemur að bílnum og segir við gamla manninn sem situr undir
stýri;
Þú keyrðir ansi hratt herra minn!!
Þá hálf öskrar gamla kellingin í farþegasætinu: HVAÐ SAGÐ'ANN??
HANN SAGÐI AÐ VIÐ HÖFUM KEYRT OF HRATT: öskrar gamli kallinn á móti
til
hálf heyrnalausrar konu sinnar.
Löggan: Ég verð því miður að sekta ykkur!
Kéllingin: HVAÐ SAGÐ'ANN??
Kallinn: HANN SAGÐIST ÞURFA AÐ SEKTA OKKUR!!!
Löggan tekur upp sektarmiðana og spyr svo hjónin: Á hvaða leið eruð
þið?
Kjéllingin: HVAÐ SAGÐ'ANNN???
Kallinn: HANN SPURÐI Á HVAÐA FERÐ VIÐ VÆRUM!!
Segir svo við lögguna; við erum á leið heim austur, heim á
Egilstaði.
Egilstaði, ha; segir löggan og bætir við, úff versti dráttur sem ég
hef
fengið á æfinni var þar!!!
Kéllinginn: HVAÐ SAGÐANN!!!!!
Kallinn lítur á konu sína kvikindislegur á svip og öskrar á hana:
HANN ÞEKKIR ÞIG!!!
Bara svona svo fólkið fari nú að hugsa sig aðeins um hvað það er að
segja við náungann
»
17.03.2006 20:36:38 / Kristín
Jæja er ekki kominn tími á smávegis blogg.. bara pínkulítið
einsog sumir segja
Herðu allvena, þá vorum við að gera svona (hvað á maður að
segja) verkefni í félagsfræði, það er að segja, brjóta svona
óskráðar reglur í mannlegum samskiptum, svo sem stara í augun á
ókunnugum, spjalla við ókunnugan um persónuleg mál eða einsog
aldagamlan vin... Alltí lagi með það, þanngað til..
Við vorum sem sagt að leita að fólki til að gera þessa tilraun á og
finnum þá þennan Úber Foxy gaur í tölvu á ganginum, þannig að ég
legg í það að ræða við hann málinn, sest óþarflega nálægt honum og
tala einsog allger asni.. Hvað er klukkan? punktastöðuna og annað
þvíumlíkt. En gaurinn sýnir akkurat enginn viðbrögð, og ég
sérdeilis ekki sátt..( Gaurinn greinilega vanur svona athygli) en
ok ég segji bara bless og allt í góðu.. og svo bara stelpur ég
hefði kannski átt að segja honum að við værum að gera verkefni..
þannig að ég hleypt til baka og þá var hann bara búinn að forða
sér.. (hvur anskotinn, trúi þessu ekki uppá hann)
En allavena þá fer ég í dag niður í Farco að kaupa mér eitt stykki
buxur.. og hver haldið að sé að vinna þarna.. já einmitt Gaurinn..
SHTT ég hefði ekki getað verið vandræðalegri.. en bjargaði mér
fyrir horn og þóttist ekki þekkja hann.. Góður
En annars er ég bara ósköpinn öll dugleg að passa núna.. búin að
fara í ýtarlegar umræður um drauga við litla frænda minn.. Sem sagt
Baltasar og Jökull sjá drauga en ekki Veigar Bjarki.. (Veigar
Bjarki er litli frændi minn en Baltastar og Jökull eru vinir
hans)
Fannar ertu að lesa?
En annars hljótið þið að vera velta fyrir ykkur fyrirsögninni..
Snjalla Kindereggið.. ef þið þekkið mig.. þá hljótið þið að ná
því.. en annars þá bara biðjið þið um svarið
Áskorun dagsins er sú : Dadadadammnmmmm Ég mála mig
sem GOTH og Fannar sem Kvennmann og við förum sama út að
rölta á meðal fólks.. þetta mun gerast á næstu vikum eða svo
En annars tel ég þetta vera komið gott af manneskju sem veit
aldrei um hvað á blogg..
Til hamingju með afmælið Hafþór
Cheers Kristínaa
»
13.03.2006 13:36:08 / Kristín
Same með Snow Patrol
Maybe somewhere else
will not be half as cold as me
the curtains drawn the winter sun
makes patterns on your face
it looks like some kalidescopic breathing exercise
it's the same
baby won't you breathe
Hold me in your freezing arms before we have to go
I wince a little but it's not because I know the truth
The windshield of your little car is frosted through the glass
A clear heart of air appears as we shiver on the seats
It's the same
Treat it as a test
Baby won't you breathe
Endalaust gaman af þessum.. Cheers Kristín
»
28.02.2006 13:47:16 / Kristín
»
03.02.2006 17:09:40 / Kristín
hehehe góð byrjun á þessu bloggi ... setti inn þetta hérna inn
fyrir ofan og ýtti svo á Enter.. hehe góður
Herðu ég var að horfa á sjónvarpið og fór alltí einu að pæla
hvað ég væri nú að horfa á.. haldiði ekki að ég hafi ekki komist að
þeirri niðurstöðu að þetta væri bara ofbeldi og klám.. ég er ekki
að grínast.. Alltílagi ég viðurkenni það að kynlíf selur og
yfirleitt er ofbeldi fylgifiskur þess í sjónvarpsiðnaðinum.. En kom
án þetta í teiknimyndum í barnatímanum .. ég meina það... er þá
ekki komið nóg.
He-man góður..
Fór á Bubba tónleika í gær.. Öshh hvað kallinn var góður..
 en minnið mig á að sitja ekki næst nálægt Jóni og Eyþóri.. og
það er sko verið að tala um að konur tala mikið.. þeir afsönnuðu þá
kenningu.. 
Ú Ú ég er dökkhærð.. var ég búin að koma með þá tilkynningu..
gaman að segja frá því að ég fór semsagt í litun og klippingu og
sagði við kallin að ég vildi verða dökkhærð.. alltí lagi með það..
en svo fór ég að hugsa og sagði svo.. er hægt að setja annan lit í
hann bara já ekkert mál hvaða lit viltu.. og ég svara.. bara
einhver sem mömmu myndi finnast ljótur.. hehehehe en svo finnst
mömmu þetta bara geggjað
Gaman af því..
Og nei Fannar ég ætla bara að leyfa þér að lifa í
óvissunni
Heyrumst ÉG
»
20.01.2006 12:16:40 / Kristín
»
17.01.2006 13:49:45 / Kristín
Talandu um að láta sér leiðast í félagsfræði...
En anýveis mætti hress og kát í íþróttir og svo þurfti ég að
gera svona hliðar saman hliðar hlaup og ég hélt nú að rassinn minn
ætlaði að detta af... var ekki að meika það.
Og líka íþróttakennarinn talar einsog teiknimynda persóna..
-
Þekking sem hefur
þróast á löngum tíma. Vísindi leitast við að skýra, lýsa og
skilgreina heiminn og setja fram kenningar um hann og beita til
þess sérstökum aðgerðum og tækni.
Góðar glósur.. bara
að deila með heiminn. Þið verðið að læra eitthvað.. ég meina
það
En núna er komin nýr
linkur á síðuna.. fréttahornið... Fréttahorn Kristínar og
Adda..Veit nú ekki hvort Addi haldist eitthvað í þessu en hverjum
er ekki sama nee smá spaugur þúst like tótally normal
sko
Með kveðju ÉG og
hugsanlega Addi
ÉG er svööng..
mammmmmmaaaa Hey ég kann að skrifa MAMMA!!! á reiknivélina mína
ógisslega klár fattaði það allveg sjálf
En annars bara allt í
góðu og ég gæti ekki hlakkað meira til að fá bílprófið mitt...
eftir 4 mánuði látið ekki svona.. enginn tími
Heyrumst Fröken
Hugsuður Félagsfræðinnar
»
11.01.2006 21:59:36 / Kristín
Nei það héld ég ekki. En Fannari finnst það eða hann er bara
HIPPI
En allavena er barasta ekkert merkilegt búið að vera að gerast
nema..
- skólinn byrjaður
- ég er búin að vinna einsog crazy
- en er hætt að vinna einsog crazy
- er núnar bara að vinna á laugar og sunnudögum...
- allir velkomnir að kíkja á mig aðrahvora helgi
- Bakaði pizzu í dag
eða ég og Veigar Bjarki..
- Ótrúlega dugleg við

- Er þreytt...
og á guð þetta er mest lame blogg sem búið hefur verið til. Bara
svona að nefna það.
En ég lofa að drusla mér í tölvuna þegar mér dettur eitthvað
sniðugt í hug að blogga..
Með besustu kveðjum Kristín (Silvía nótt 2 takk fyrir
)
»
11.12.2005 00:14:07 / Kristín
- Mig langar að hafa Welskan hreim... það er meira kúl en
allt.
- Hver er munurinn á að vera ríðuleg og kærustuleg?
- Afhverju snjóar ekki meira?
- Piparkökur, hví var mér ekki búið að dett það í hug..
- Ég er að spá í að mæta sem Goth og tala dönsku þegar ég fer í
vinnuna á morgun
- Öhh.. ég ekki klár.. og þú ekki klár... hver er þá sem er klár,
HVAÐ verður um heiminn..
- Mig langar til að vera næsta Bond stúlkan... eða bara tré í
Star Wars
- Hann er tannlaus greyið takið eftir því, tönnunum hann týndi,
takið eftir því tönnunum hann týndi.. sykursnúðum ííí... ný er ill
í efni ekk ert tyggja má..
Nú er þetta komið nóg.... gott að hafa þetta stutt
heyrumst Kristína
»
29.11.2005 09:08:44 / Kristín
Can you hear
me? Hear
me screaming Breaking in the muted
sky This
thunder heart Like bombs
beating Echoing a thousand
miles Mine is yours and yours is
mine There is no
divide In your honor I would die
tonight Mine is yours and yours is
mine I will
sacrifice In youre honor I would die
tonight For you to feel alive
Can you feel
me? Feel me
breathing One last breath before I close me
eyes This offering For
receiving Deliver me into the other
side
Segiði svo að ég sé ekki dugleg að
blogga Þetta munið þið aldrei toppa því ég ætla sko að vera
ótrúlega dugleg að tjá mig núna...(því ég á pottþétt ekki eftir að
nenna að blogg aftur í bráð) 
Hehe vitið hvað mér tókst að gera
þegar ég var búin að vinna á sunnudaginn. Ég hélt sem sagt að ég
hefði gleymt símanum mínum í skápnum. Ég hugsaði með mér ææ
skúringarfólkið hlýtur að fara að koma. Þannig að ég hljóp útí
vinnu en nei það var ekki mætt á svæðið.. þannig að ég fór aftur
heim.. fór svo aftur eftir klukkutíma en nei það var ekki mæta og
ég hugsaði með mér hvaða djöfulsins léti þetta væri í fólkinu að
mæta ekki í vinnuna..þannig að ég fór heim og settist fyrir framan
tellíið og fór þá að spá hvar kortið mitt væri nú (shit hvar er það
núna..ææ leita að því á eftir) Fór þá að leita í úlpunni minni og
nei það var ekki þar.. stakk þá höndunum í vasana á peysunni minni
og hvað haldiði kortið mitt var þar.. og síman minn... Ég hélt að
mamma myndi grenja augun úr sér af hlátri hún hló svo mikið af mér.
Ég búin að hlaupa fram og til baka eins og allger asni.
Sko toppið þetta
En jæja þetta er búinn að vera fínn
dagur
J
HEY ég fæ að sleppa við félagsfræði prófið JAHÁ
kjéllingin góð á því takk fyrir.
Við horfðum á Hellisbúann í gær og ég
er ekki frá því að ég hafi fengið krampa í magann af hlátri við að
horfa á hann og auðvitað má ekki gleyma að maður lærði nú
ýmislegt..
Já já óhreinar nærbuxur voru víst til í fornöld
Ég var líka spurð (af Helga) afhverju við stelpurnar færum annars
saman á klósetið og ég svaraði að við gengum í hringi og skoluðum
niður.. og ég er ekki frá því að hann hafi trúað þessu í svona fimm
mín. En nei svo sagði ég bara að við værum að tala saman, því já
stundum er meira næði þar inni en annars staðar.. ótrúlegt en satt

Ég er að spá afhverju Bubbi Morthens
(Er eftirnafnið rétt stafsett? er ekki alveg klár á þessu..) er
svona ótrúlega kúll á því, þessi ess mælti skallapoppari er að fara
yfir um að mínu mati á kúlleikanum
Uppdeit á
óskalistanum
Diskurinn með
Hjálmar.. Allir diskarnir með Sigurrós (það
þýðir ekki bara að eiga einn) Skór Bækur ( það verður
útlistað nánar, fylgist endilega með )
Og svo
bara hinir ýmsir diskar með hinum ýmsu
hljómsveitum.. Ást og umhyggju og nóg af
henni
J
En annars við heyrumst
síðar. Keep
spreding the joy Með upplýsandi jólaljósum og
kyngjandi snjó hér á Norðurlandi munum við heyrast síðar..
The jule angel Kristína
J
»
15.11.2005 13:29:07 / Kristín
57 manns tóku þátt, en ég reikna með að þetta hafi allt verið
Fannar bara til að reyna að vinna mig.. en þar sem glögg augu
lesenda geta séð þá RÚSTAÐI (vægt til orða tekið) Fannari með
glæsibrag og ég vil þakka öllum þeim sem að þessu komu
En það sem ég er búin að vera að brasa er eitthvað ósköp lítið,
vinna, sofa, ball, afmæli... jáhh talandi um það. við verðum að
gera eitthvað saman þið þarna í gamla bekknum þetta gengur ekki
lengur...
Ég verð að segja að þetta með tattú málin þau eru að reddast á
mjögggg hægum tíma, eða málin standa þannig að ég má ekki fá mér..
hehehe var að reyna að byggja upp vonirnar hjá sjálfri mér með
þessu nei nei segji svona
Óskalisti Kristínar...
- Takk með Sigurrós..
- Diskurinn með Hjálmar
- Nýja skó... (botninn fór úr hinum, ekki gaman)
- og nú veit ég ekki...
En ég er búin að sjá það að bleikir barbie gúmmískór eru
aðalmálið í dag.. þó svo að sumir séu ekki sáttir við það, þá verð
ég að segja það að mér er eiginlega bara allveg
sama..múahahha
Er núna inná bókasafni að hlusta á Bob Marley... jáhh Mosi minn
er sko að stansa sig
En er að spá að fara að gera eitthvað sniðugara..
ég heyri malbikið tala til mín,
röddin er hrúf gegnum vélarniðinn,
daðrið er beinskipt og traustvekjandi,
og vegurinn sannfærir mig.
en hver sem hraðinn er við höggið,
þá reynist flugið ekki mikið,
því ég og bílrúðan erum stjörnur,
og okkur rignir yfir malbikið.
og niður í faðm vegarins,
þá næ ég flugi engla,
ég heyri himnakór bremsufara,
og bý mig undir lendinguna.
en ég kann ekki á englatækni,
og ég lendi ekki með lægni.
kem fyrst niður með hausinn,
og brýt þannig á mér hálsinn.
verkið hefur engan ramma,
þetta er abstrakt ég við kantinn,
nafnið skerst djúpt ofan í malbikið,
og blóð mitt er undiskriftin.
ég vildi óska að þú ættir,
þessa síðustu mynd af mér,
því ég vil að þú skiljir,
að það var hjartað sem tók frammúr.
en kaldhæðnin er sú að vegurinn er,
alltaf jafn langur þó ég flýti mér...
Kristína engill(A) 
»
26.10.2005 20:53:40 / Kristín
»
12.10.2005 15:27:14 / Kristín
-ÉG 
-Ég mun drepa þig...
ISS að geta sagt þetta.. I can´t believe that hehe
EN jámms... Glor, glory, glory Enska jáhh það var sko enginn
Gashub í dag, dagurinn gæti ekki verið betri.
Jáhh nema eitt kannski.. ég hefði nú allveg getað hugsað útí það að
maður þyrfti að fá sér að eta í hádeginu en nei á ekki pening og
langar í pizzu svo.. það á að steikja fisk handa mer... Takk
mamma hehe
Ójá mamma mín er bara kúl
En hvað getur maður sagt.. núna er tjáningarlotan búin og það
þýðir að þú eigir að halda kjafti Bjöggi og hætta að kalla mig
Stínu. Þetta er komið gott. takk fyrir.
jæja.. krakkar mín þetta virkar nú frekar leiðinlegt og
hnitmiðað blogg.. æ æ whú keers.. ég get nú ekki séð að það lesi
þetta margir..
EN hey ykkur er öllum velkomið að mæta næstu helgi niður í
sjallan því yðar Kristín verður þar... ótrúlega fínt klætt og sæt..
gæti ekki verið betra þið skiljið.. hehehehe
en jám.. blehh herðu ég lofa því við skátaheiður minn... eða
jámm ég mæti á einn fund og labbaði út af honum þegar við áttum að
syngja egg egg egg eitthvað.. vá skátar eru skrýtnir hehehe
anyweys.. ég er farin út að búa til snjókall.. heyrumst
Kristína eskimói 
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|